Eignalind fasteignasala
Opið hús að Stóragerði 11 Föstudaginn 10.07 fellur niður þar sem eignin er seld með fyrirvara.
Eignalind fasteignasala og Ellert Róbertsson sölumaður gsm.
893-4477 og Sigurður O Sigurðsson lögg. fasteignasali gsm.
616-8880 kynna í einkasölu glæsilega 140,8 fm. ásamt 30 fm. bílskúr í mjög vel staðsettu þríbýli. Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarson.
Sér inngangur, flísalögð forstofa með fatahengi, í forstofu er gestasnyrting með nýju upphengdu w.c.
Bjart alrými, eldhús með nýlegri eldhúsinnréttingu, nýr bakarofn og stór eyja með góðum skápum með granítsteini á borðplötum. Parket á gólfum og nýlegar innihurðir. Stofa með gluggum upp í loft og stórum suðursvölum, rúmgott herbergi inn af stofu lokað af með hljóðeinangrandi rennihurð, notað sem sjónvarpsherbergi í dag.
Á svefnherbergisgangi er veggföst góð innrétting í ljósum við, neðri og efri skápar. Gengið inn í endurnýjað baðherbergi flísalagt upp í loft, gólfhiti, stór sturtuklefi, góðir skápar og gluggi. Hjónaherbergi með flotuðum svölum sem snúa í austur og rúmgóðir skápar með gólfsíðum spegli.
Þvottaherbergi flísalagt, með gólfhita, hornbaðkari glugga og innréttingum í innréttingu er vaskur. Stórt svefnherbergi með skáp var áður tvö herbergi því eru tveir gluggar og parket á gólfum. Svefnherbergi parket á gólfi og laus fataskápur sem fylgir. Í kjallara er sér 6,5 fm. geymsla og önnur sameiginleg geymsla með efri hæð undir útitröppum. Rúmgóður 30 fm. bílskúr með hurðaoppnara, hita og vatni og góðum gluggum og útihurð bakatil. Þak nýlega endurnýjað og bílskúrsþak dúkalagt fyrir ári síðan. Góður og fallegur garður.
Frábær staðsettning, göngufæri í t.d. skóla, leikskóla, Austurver verlunarkjarnan og Kringluna.
Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir Ellert Róbertsson sölumaður gsm.
893-4477 eða
[email protected] Hvað kostar þín fasteign?
Kíktu á
www.verdmat.is